Skrollaðu niður
Vörumerkjahönnun og ásýnd
Við hönnum merki og ásýnd fyrir fyrirtæki, vörur og þjónustu.
Hvað felst í þjónustunni?
- Stefnumótun og skilaboð vörumerkis
- Nafnavinna og merkjahönnun
- Letur, litir og myndmál
- Heildarásýnd og hönnunarhandbók
- Útfærslur fyrir vefi og öpp
- Umbúðir og kynningarefni
Stefna og sérkenni
Við kynnumst fyrirtækinu og viðskiptavinum þess. Saman ákveðum við hvað á að einkenna vörumerkið.
Merki, letur og litir
Við hönnum merki, veljum letur og liti og mótum myndmál fyrir vefi, umbúðir og kynningarefni.
Leiðbeiningar og sniðmát
Hönnunarhandbók og sniðmát auðvelda ykkur að útbúa nýtt efni og halda samræmi í ásýndinni.
Tengd verkefni
Algengar spurningar
Getum við haldið núverandi merki?
Já. Við getum haldið merkinu og endurskoðað letur, liti og myndmál.
Getið þið hannað ásýnd og vef saman?
Já. Við getum hannað ásýnd og vef samhliða. Sama gildir um öpp.
Hvað fáum við afhent?
Þið fáið merkið á þeim skráarsniðum sem þið þurfið. Hönnunarhandbók og sniðmát fylgja eftir samkomulagi.
Önnur þjónusta
Hér heima og erlendis
Studioek er í Reykjavík og vinnur með fyrirtækjum hér heima og erlendis.
Um samstarfið

