Studioek
Bóka samtal
Öll þjónusta
Skrollaðu niður

Vefhönnun, vefþróun og vefverslanir

Við hönnum og þróum vefi sem útskýra þjónustuna, auðvelda fólki að velja og styðja við reksturinn. Verkefnið getur verið nýr fyrirtækjavefur, endurhönnun, vefverslun eða bókunarþjónusta.

Hvað getur verkefnið falið í sér?

Vefurinn þarf að útskýra fyrirtækið

Þegar fyrirtæki breytist þarf vefurinn að fylgja með. Við mótum efnisuppbyggingu og hönnum leiðir að þjónustu, vörum og upplýsingum. Við byrjum á spurningunum sem viðskiptavinir þurfa svör við og því sem þeir eiga að geta gert á vefnum.

Vefverslun snýst um meira en körfuna

Fólk þarf að finna vöruna, skilja muninn á valkostum og treysta því sem það kaupir. Við hönnum vöruleit, flokkun, vörusíður og kaupferli sem eina heild. Fyrir flóknari vöruframboð getur verkefnið líka snúist um samanburð, leiðsögn við val eða fyrirspurn um tilboð.

Traustur grunnur fyrir áframhaldandi vinnu

Vefurinn þarf að vera hraður, virka í síma og vera auðveldur í uppfærslu. Við veljum tæknilega útfærslu og efnisumsjón út frá þörfum fyrirtækisins. Við endurhönnun förum við yfir slóðir og tilvísanir svo notendur og leitarvélar komist áfram á rétt efni.

Tengd verkefni

Algengar spurningar

Getið þið endurhannað núverandi vef?

Já. Við skoðum hvað virkar, hvað vantar og hvað má nýta áfram. Verkefnið getur náð yfir efnisuppbyggingu, hönnun, þróun eða alla þessa þætti.

Getum við uppfært efnið sjálf?

Já. Við getum tengt vefinn við efnisumsjónarkerfi þar sem þið uppfærið til dæmis texta, myndir, vörur og verkefni. Við afmörkum hvað þarf að vera hægt að breyta áður en þróun hefst.

Er SEO hluti af vefverkefni?

Tæknilegur grunnur, skýr efnisuppbygging og lýsigögn eru hluti af vönduðum vef. Nánari leitarorðavinna og efnisgerð eru skilgreind í umfangi verkefnisins. Staða í leitarniðurstöðum ræðst líka af samkeppni, innihaldi og fleiri þáttum sem enginn getur tryggt fyrirfram.

Önnur þjónusta

Samstarf yfir landamæri

Studioek er í Reykjavík og tekur að sér verkefni fyrir fyrirtæki á Íslandi og erlendis. Við bjóðum teymum í San Francisco og New York samstarf um hönnun og þróun með skýru umfangi, reglulegu samráði og sameiginlegri yfirferð.

Svona getur samstarfið gengið fyrir sigRæða verkefni