Notendaupplifun og UX/UI-hönnun
Við hönnum notendaupplifun fyrir öpp, vefi og stafræna þjónustu. Markmiðið er að fólk finni það sem það leitar að, skilji hvað það á að gera og geti klárað erindið sitt.
Hvað getur verkefnið falið í sér?
- Úttekt á notendaupplifun
- Greining á þörfum og helstu aðgerðum
- Uppbygging efnis og leiðakerfi
- UX/UI-hönnun og frumgerðir
- Notendaprófanir
- Hönnunarkerfi og leiðbeiningar fyrir þróun
Finna það sem flækir upplifunina
Við skoðum vöruna út frá því sem fólk er að reyna að gera. Hvar vantar upplýsingar? Hvar verða of mörg skref? Hvar er næsta aðgerð óljós? Úttekt á notendaupplifun getur afmarkað verkefni áður en stærri endurhönnun hefst og hjálpað teyminu að forgangsraða.
Prófa hugmyndina áður en hún er forrituð
Smellanleg frumgerð sýnir hvernig varan á að virka. Hún nýtist við notendaprófanir, ákvarðanatöku og samtal við þróunarteymið. Við getum prófað einstaka aðgerð eða heilt ferli, svo sem nýskráningu, vöruleit, kaup eða bókun.
Samræmi þegar varan stækkar
Hönnunarkerfi heldur utan um endurnýtanlega hluta, letur, liti og reglur um hegðun vörunnar. Það auðveldar áframþróun og dregur úr ósamræmi milli skjáa. Við hugsum um aðgengi, mismunandi skjástærðir og þau tilvik sem koma upp í raunverulegri notkun, svo sem villur og tómar niðurstöður.
Tengd verkefni
Algengar spurningar
Hver er munurinn á UX og UI?
UX snýst um heildarupplifunina og hvort fólk nái markmiði sínu. UI snýst um það sem fólk sér og notar á skjánum, svo sem letur, hnappa og uppsetningu. Við vinnum þetta saman svo útlit og virkni styðji hvort annað.
Er hægt að byrja á einu vandamáli?
Já. Verkefnið getur snúist um eina aðgerð, til dæmis að einfalda kaupferli eða skráningu. Við afmörkum verkefnið út frá því sem þarf að bæta.
Hvað fá þróunaraðilar afhent?
Það fer eftir verkefninu, en getur verið hönnun skjáa, frumgerð, endurnýtanlegir hlutar og lýsing á hegðun, villutilvikum og mismunandi skjástærðum. Við förum yfir afhendinguna með þeim sem sjá um þróunina.
Önnur þjónusta
Samstarf yfir landamæri
Studioek er í Reykjavík og tekur að sér verkefni fyrir fyrirtæki á Íslandi og erlendis. Við bjóðum teymum í San Francisco og New York samstarf um hönnun og þróun með skýru umfangi, reglulegu samráði og sameiginlegri yfirferð.
Svona getur samstarfið gengið fyrir sig

