Skrollaðu niður
Apphönnun og appþróun
Við hönnum og þróum ný öpp og bætum þau sem eru þegar í notkun.
Hvað felst í þjónustunni?
- Hugmyndavinna og afmörkun
- Notendaupplifun og viðmótshönnun
- Frumgerðir og notendaprófanir
- Hönnunarkerfi
- Appþróun og kerfistengingar
- Útgáfa og áframþróun
Fyrsta útgáfan
Við ákveðum með ykkur hvað appið á að gera. Síðan hönnum við frumgerð og prófum hana með notendum áður en forritun hefst.
Einfaldara í notkun
Við bætum öpp sem eru þegar í notkun, til dæmis með einfaldari skráningu, skýrari leiðbeiningum eða færri skrefum í kaupferli.
Samstarf við forritara
Við vinnum með forriturunum ykkar eða sjáum um bæði hönnun og þróun.
Tengd verkefni
Algengar spurningar
Þurfum við verklýsingu?
Nei. Segið okkur frá hugmyndinni eða því sem þið viljið bæta. Við ákveðum næstu skref saman.
Getið þið unnið með forriturunum okkar?
Já. Við hönnum viðmótið, prófum það með notendum og förum yfir útfærsluna með forriturunum ykkar.
Hvað kostar að hanna og þróa app?
Það fer eftir umfangi og virkni. Við gerum tilboð þegar við höfum farið yfir verkefnið með ykkur.
Önnur þjónusta
Hér heima og erlendis
Studioek er í Reykjavík og vinnur með fyrirtækjum hér heima og erlendis.
Um samstarfið

