Studioek
Bóka spjall

Studioek sem Digital Partner

12. maí 2026
(©)
Skrollaðu niður
Studioek sem Digital Partner

Við hjá Studioek erum að setja af stað nýja þjónustu fyrir fyrirtæki sem vilja koma fleiri stafrænum verkefnum í framkvæmd án þess að ráða heilt teymi innanhúss.

Í mörgum fyrirtækjum eru verkefnin til staðar. Vefurinn þarf að þróast, appið þarf að batna, innri kerfi mættu virka betur og endurtekin vinna tekur tíma. Á sama tíma eru ný tækifæri að opnast með sjálfvirkni og gervigreind, en það er ekki alltaf ljóst hvar á að byrja.

Þarna komum við inn.

Studioek verður ykkar Digital Partner fyrir hönnun, tækni og gervigreind. Við hjálpum ykkur að sjá hvað skiptir mestu máli, forgangsraða rétt, hanna lausnir, byggja þær og koma þeim í notkun.

Þjónustan er sett upp í þrjá mánaðarlega pakka:

01 Viðhald

Fyrir fyrirtæki sem þurfa reglulega umsjón, smærri lagfæringar og skýra yfirsýn.

02 Vöxtur

Fyrir fyrirtæki sem vilja bæta stafrænar vörur, þróa nýjar síður, laga flæði og koma fleiri stafrænum verkefnum í framkvæmd.

03 Teymi

Fyrir fyrirtæki sem vilja stafrænt sérfræðiteymi sér við hlið til að leiða stærri verkefni, þróa lausnir, tengja kerfi og nýta gervigreind á markvissan hátt.

Markmiðið er einfalt: að hjálpa fyrirtækjum að halda stafrænu hlutunum á hreyfingu, nýta tæknina betur og koma fleiri góðum verkefnum í framkvæmd.

Skoðaðu pakkana hér: studioek.is/partner

Tengdar greinar

(#)

Sjá meira

Uppgötvaðu innblástur, nýjustu strauma, ráð og sögur úr hönnun og stafrænni nýsköpun.

Heyrðu í okkur